Ákveðin í að verða sigurvegari.

Mikið er ég þakklát fyrir upplýsingar og uppörvun frá þeim sem hafa gengið í gegnum það sem getur beðið mín, að einhverju eða öllu leyti. Fyrst heyrði ég frá frænku minni á Bornholm  sem sendi mér síðan heilmiklar upplýsingarnar.

Svo fékk ég um daginn símtal frá bloggvinkonu minni, sem er á einu ári búin að fara í gegnum alla  þá meðferð sem veitt er vegna brjóstakrabba. Ég var búin að fylgjast með henni á blogginu þar sem hún lét okkur bloggvini sína fylgjast með sér og sagði okkur svona undan og ofan af því sem hún gekk í gegnum. Það var hins vegar alveg dásamlegt að tala við hana og hún gaf mér mikið af upplýsingum um ýmislegt þessu tengdu, bæði varðandi réttindi og það sem  í boði er til hjálpar,  svo margt sem ég hafði ekki hugmynd um í sambandi við þetta allt saman.

Svo í lokin þá sagði hún mér að hún hefði skrifað dagbók – stutt yfirlit yfir hvern dag allan meðferðartímann.  Hún bauð mér síðan að fá að lesa dagbókina hennar ef ég vildi.  Hvort ég vildi –  Hún sendi mér hana síðan og ég hóf lesturinn alveg á stundinni.

Nú hefi ég í höndum upplýsingar og lýsingar sem eru mjög ólíkar því sem ég hef lesið á netinu, enda ekki skrýtið að það sé með ólíku móti sem er annars vegar tekið saman af fagmönnum um blákaldar staðreyndir og hins vegar  lýsingar einstaklings á sinni upplifun þar sem  persónulegar tilfinningarnar koma við sögu.

Dagbókin hennar, sem vissulega er ekki fögur lýsing, sýnir þrátt fyrir allan alvarleikann svo mikinn baráttuanda og bjartsýni, að ég tali nú ekki um dugnaðinn. Það er dásamlegt  að sjá í gegnum lesturinn hvernig hún hefur ríghhaldið í baráttuandann og fullvissuna um að koma út úr þessari erfiðu glímu sem sigurvegari.  Það er sama hvað hún hefur verið illilega slegin niður aftur og aftur í baráttunni gegn þessum óvini og lyfjunum og öðru sem þessu fylgir þá hefur uppgjöf  bara ekki komið til greina  – hún hefur staðið upp aftur og aftur og  hefur nú komist alla leið í mark sem SIGURVEGARI, tilbúin að njóta lífsins að nýju.

Þessa konu geri ég að fyrirmynd minni í baráttunni og hugsa til hennar við hvert  skref sem ég  stíg í átt að settu marki.

Við lesturinn sá ég svo hvað ég er heppin að búa á höfuðborgarsvæðinu þar sem er stutt að fara, bæði á spítalann og í aðra þjónustu í sambandi við þetta.  Hún vinkona mín á hinsvegar heima  langt úti á landi.  Það hlýtur að vera mikið aukaálag að þurfa að keyra í allt að 8 klukkutíma eða meira hvora leið til þess að sækja sér læknishjálp á Landspítalann og þurfa að dvelja í langan tíma í einu fjarri heimili sínu og eiginmanni – aftur og aftur.

Mér fannst svo gott að lesa þessa dagbók, þrátt fyrir það að í henni sjái ég svart á hvítu hverju ég get búist við. Engar tvær meðferðir eru þó eins og enn veit ég ekkert hvað mér verður ætlað að gera.

Þegar staðið er frammi fyrir slíkum óvini sem krabbameinsæxli er, þá eru bara tvær leiðir í boði  önnur er sú að berjast en hin að taka ekki til vopna  – Aðra leiðina verður maður að velja og ég ætla ekki að láta slá mig út bardagalaust – þó ég telji mig nú nokkuð friðsama manneskju – Svo einfalt er það.

Ég hef áður bognað en ekki brotnað í lífinu og vonandi held ég sveigjunni og seiglunni ennþá svo ég komi upprétt  og sigurglöð úr þessari raun.

Nú er sem sagt komið að þessu því á mánudaginn mæti ég klukkan 07:00 um morguninn í fimm tíma aðgerð.  Ég hef fengið nokkur símtöl frá vinkonum sem ekki eru á Facebook, en óska eftir að fá fréttir af mér hérna á blogginu.  Ég er því búin að biðja Sigurrós um að sjá um það.

Kær kveðja og knús í allar áttir og hjartans þakkir fyrir allar góðu kveðjurnar og bænirnar mér til handa, sem munu fylgja mér í aðgerðina og í framhaldið.

Heyrumst svo þegar ég verð sjálf komin með ráð og rænu aftur.

 

 

 

 

This entry was posted in Hugleiðingar mínar. Bookmark the permalink.

10 Responses to Ákveðin í að verða sigurvegari.

  1. Ragna says:

    Ég hef heyrt að ég tali í kringum það hvað sé í gangi. Ef svo er, þá er því fljótsvarað. Það á að taka annað brjóstið vegna krabbameinsæxlis. Ég er bara ein af allt of mörgum konum sem þurfa að ganga í gegnum svona aðgerðir. Enginn er stikkfrí, röðin var bara komin að mér að þessu sinni og ekkert annað að gera en að taka því, berjast og treysta bara Guði og góðum læknum.

  2. Jæja mín kæra vinkona, þá er komið að því og nú duga engin vettlingatök! Gott að dagbókin sýndi að nánast allt er hægt. Nú bið ég góðan guð að fylgja þér á mánudaginn, og að eftirleikurinn verði vægur. Kveðja frá okkur Bróa

  3. Katla says:

    Elsku Ragna, með þinn góða vilja og eilífa bjartsýni þá veit ég að þú ert sigurvegari! Hugsa mikið til þín og óska þér alls hin besta með hjartans kveðjum.

  4. Guðbjörg Oddsdóttir says:

    Elsku besta mamma
    Sagt er að ekki sé meira á mann lagt en maður getur borið. Þú hefur vissulega fengið þinn skerf í lífinu og vel það, ég veit að þú kemst langa leið á viðhorfinu og jákvæðninni. Gangi þér vel mamma mín og við sjáumst seinnipartinn á morgun. Ég verð með þér allan tíman í huganum :0) Ég elska þig.

  5. Stefa says:

    Gangi þér vel elsku besta Ragna mín!

    Ég hugsa til þín og bið góðu englana að vaka yfir þér…

    *Risaknús*
    Þín Stefa

  6. Ágústa says:

    Gangi þér elsku Ragna mín, gott að Sigurrós ætlar að uppfæra okkur hverning gengur, þú verður í huga mínum, knús frá okkur :*

  7. Sigurrós says:

    Þú ert hetjan mín, elsku mamma, og ég vona svo sannarlega að ég nái að fara í gegnum lífið með sama æðruleysi og krafti og þú gerir. Gangi þér virkilega vel á morgun, hugur okkar allra verður hjá þér.

  8. þórunn says:

    Þakka þér fyrir þennan einlæga pistil, ég efast ekki að þú sigrar þennan óboðna gest, vonandi án þess að hann berjist illa á móti. Ég verð með hugann hjá þér á morgun og bíð svo eftir fréttum frá Sigurrós. Sendi líka góðar kveðjur til fólksins þíns sem örugglega mun styðja þig með öllum ráðum.
    Góða nótt og vonandi hvílist þú vel fyrir átökin.
    Kveðja frá okkur Palla, Þórunn.

  9. Ragna says:

    Yndislega fólk. Ég vil að þið vitið hvað það er dásamlegt að fá allar þessar góðu kveðjur og einnig á Fésbókinni. Ég bara mátti til með að opna tölvuna áður en ég fer í síðasta sótthreinsunarbaðið hérna heima nú klukkan fimm um morgun aðgerðardagsins svo ég geti þakkað ykkur fyrir allan stuðninginn. – hvar væri ég án góðu fjölskyldunnar minnar og ykkar allra.
    Það er þess virði að vakna svona snemma og sjá hvað allt er fallegt úti þegar sólin er að koma upp. Mér líður ljómandi vel í dag og er afslöppuð. Nú er best að fara að koma sér í sturtuna.
    Guð blessi ykkur öll.

  10. Svanfríður says:

    Elsku Ragna. Þetta var góður og einlægur pistill. Ég hugsa til þín á meðan þú gengur í gegnum þetta. Þú ert með gott hugarfar og það tekur þig langa leið. Sigurrós og Guðbjörg: ég hugsa til ykkar líka því það er erfitt að sjá móður sína ganga í gegnum allt og varla gert neitt. Gangi ykkur öllum vel. Kærkeikskv. Svanfríður

Skildu eftir svar