Á tímamótum 12. nóv. 2012

Já nú stend ég á skemmtilegum tímamótum.  Fyrst ber að nefna að ég er langt komin í krabbaferlinu, þar sem hann er sjálfur kominn út í hafsauga. Já þökk sé góðum læknum fyrir það og líka það að í staðinn hef ég nú fengið nýtt búbís og lappað af snilld upp á hitt í stíl. Já þetta er ekkert feimnismál því svona hlutir gerast á hverjum degi og við getum verið þakklát þessu góða fólki sem hjálpar okkur til þess að allt sé sem eðlilegast þegar svona kemur fyrir.  Já, það er greinilegt að viðhaldstíminn stendur nú sem hæst, vonandi bara búin að endurnýja og losa mig við það sem hefur valdið mér ama svo ég geti nú glöð og hress gengið inn í næsta tímabil.

Í dag 12. nóvember 2012  fylli ég nefnilega flokk þeirra sem teljast eldri borgarar.  Annars hef ég nú í raun verið eldri borgari mestan hluta lífs míns, því ég er auðvitað alltaf eldri en þeir sem eru yngri en ég 🙂   En nú hefst sem sé ganga mín með eldri borgurum og ég ætla bara að segja ykkur að mér líst bara rosalega vel á það.  Það þarf a.m.k. ekki að kvíða því að það sé ekki hægt að finna afþreyingu og þetta fólk kann flest að skemmta sér og svo margt er í boði að aðal höfuðverkurinn verður örugglega sá, að finna út hvernig maður á að komast yfir að gera allt það skemmtilega sem í boði er út um alla höfuðborgina.

Ég er nú aðeins búin að æfa mig, því ég hef farið með Hauki að syngja með Gleðigjöfunumí Gullsmárann, og það er mjög hressandi og gott bæði fyrir lungun og sálina.  Í kvöld fórum við í Gullsmárann á kvöldvöku þar sem einnig var sungið, farið með skemmtilegan kveðskap og gamanmál og síðan dansað. Ég er nú ekki alveg komin í það form að geta dansað neitt af viti ennþá, en lét mig þó hafa nokkra valsa og einn tangó. Ég hlakka mikið til þess að komast aftur í dansþolið mitt, því ekkert er betra fyrir sál og líkama en að dansa af lífi og sál. Það er efst á óskalistanum mínum og því takmarki ætla ég að ná um eða eftir áramót. – Kannski fyrr, hver veit.

Þrátt fyrir þessi tímamót þá ætla ég að halda áfram að vera ung a.m.k. í sálinni, og halda líka áfram að gera grín að sjálfri mér, því það er líka nauðsynlegt. Já í dag er ég ánægð með lífið og tilveruna og hlakka til að takast á við þetta nýja tímabil – það eru ekki allir svo heppnir að ná að taka þátt í því  svo ég þakka auðmjúk fyrir að fylla þann flokk sem fær að taka þátt.

This entry was posted in Ýmislegt. Bookmark the permalink.

7 Responses to Á tímamótum 12. nóv. 2012

  1. Katla says:

    Innilega til hamingju með daginn yndislega Ragna. Þú hefur mörgu að fagna en það allra besta er að sjálfsögðu þú sjálf!

  2. Innilegar hamingjuóskir elsku Ragna, og njóttu alls þess sem lífið hefur uppá að bjóða.Kær kveðja frá okkur Bróa

  3. Hafdís Baldvinsdóttir says:

    Hjartanlegar hamingjuóskir með afmælið Ragna. Vona að þú hafir það sem allra best.

    Kær kveðja

    Hafdís B.

  4. Guðbjörg says:

    Til hamingju með daginn elsku mamma, þú ert og verður alltaf best:)

  5. Sigurrós says:

    Mín elskulega stóra systir sagði nákvæmlega það sem ég hugsaði meðan ég las pistilinn þinn, þú ert sko langbest, elsku mamma mín! Þú ert svo jákvæð og einlæg og ég er svo stolt að eiga svona flotta mömmu.
    Innilega til hamingju með afmælisdaginn! 🙂

  6. Ragna says:

    Hjartans þakkir fyrir þessar fallegu kveðjur. Þær bæði gleðja og ylja.

  7. Anna Bj. says:

    Innilegar hamingju óskir, kæra vinkona og megi lánið leika við ykkur Hauk í framtiðinni. (Ég hefði nú ekkert á móti því að geta dansað eitthvað af viti, en svona er þetta bara).
    Maður smitast af jákvæðninni í þér og ég mun alltaf minnast þín brosandi. B.k.

Skildu eftir svar