Alveg stór undarlegt.

Í einum af göngutúrunum okkar fyrstu dagana rákumst við á þennan dularfulla gerning úti í Los Cristianos. Við fylgdumst með þessu í a.m.k. svona 20 mínútur til þess að sjá hvernig þeir færu úr þessari stöðu og  það var ótrúlegt að fylgjast með þessu. Sá sem haldið er á er bara í lausu lofti nema  hann heldur létt um stafinn sem sá fyrir neðan heldur uppi með annarri hendinni.  Þeir hreyfðu hvorki legg né lið og hreyfðu ekki einu sinni augun svo mikil var einbeitingin.   Loks kom maðurinn sem situr á hækjum sínum þarna vinstra megin við þá , en hann hafði fylgst náið með þei. Hann skellti yfir þá svörtum poka og eftir örstutta stund hoppuðu þeir  síðan út úr klæðinu og voru þá komnir úr búningunum.  Maður sá alveg hringinn í kringum þá og það voru engir þræðir eða neitt slíkt sem voru að halda þeim efri uppi.  Ég má til með að birta nokkrar myndir af þessu.

 

 

 

 

This entry was posted in Ýmislegt. Bookmark the permalink.

3 Responses to Alveg stór undarlegt.

  1. Anna Bj. says:

    Heyrðu – bíddu nú aldeilis hæg, HVAÐ er í gangi? Gúrúar??? Verð að sýna tengdasyni mínum þetta næst þegar hittann :/

  2. Ragna says:

    Já Anna mín, Gaman að vita hvað hann heldur um þetta. Við vorum alveg agndofa að fylgjast með þessu og líka í svona langan tímaþ Það var ekki til hreyfing á líkama þeirra frekar en þetta væru styttur.

  3. Elín Óskarsdóttir says:

    Takk fyrir skemmtilegar frásagnir. Þú ert svo góður penni.
    Kveðja Elín.

Skildu eftir svar