Svona eru tilviljanirnar oft skemmtilegar.

Mig hefur lengi langað til að fara í söngstundina sem er annan hvern föstudag hjá FEBK í Gullsmára. Í gær tókst mér að sannfæra Hauk um að koma með mér og kíkja á þetta. Þegar við komum inn í anddyrið þá sátu leikskólabörn í langri röð upp við einn vegginn. Mér datt í hug hvort það gæti verið að ég ætti einhvern í þessum hópi. Ég fylgdi röðinni og þegar ég var alveg að komast út á enda þá stóð eitt barnið upp, kallaði amma og kom og knúsaði okkur – þarna var hún nafna mín Ragna Björk komin.  Ég spurði hvað þau væru að gera þarna þá sagði mín  “ Amma við ætlum að syngja með gamla fólkinu á elliheimilinu“. Alveg dásamlegt. Við fórum svo inn í salinn og börnin sátu í hálfhring fyrir framan harmonikuleikarana fjóra sem sáu um sönginn, Við sátum hinsvegar til hliðar við þá og sáum því beint á börnin. Eftir smá stund kom mín og sagði að fóstran hefði sagt að hún mætti alveg sitja hjá okkur.

Þetta var virkilega skemmtilegt. Það voru sönghefti á öllum borðum svo hægt var að rifja upp það sem er búið er að gleyma. Það er svo gaman að syngja svona  með öðrum og ekki  spillti svo að fá svona alveg óvænt að hafa hana nöfnu sína í fanginu á meðan – það fór bara ekki af mér brosið.  Ég var að vona að börnin myndu syngja fyrir okkur nokkur lög því ég veit að þau eru með kór á leikskólanum.  Það var hinsvegar engu breytt í söngvalinu þó að börnin væru með, öðru en því að þeir spiluðu fyrir þau  „Í skóginum stóð kofi einn“, sem var nú frekar kúnstugt val þar sem þetta er jólalag um jólasvein og síðan tvö barnalög að auki. Börnin virtust þó njóta stundarinnar vel og  virtust njóta þess að hlusta á sönginn þó verið væri að syngja það sem þau kunnu ekki – allir stilltir og prúðir allan tímann.

Nokkru áður en söngstundinni átti að ljúka, voru börnin kölluð saman og þau röltu síðan aftur upp brekkuna að leikskólanum sínum í Arnarsmáranum.  „Ekki skrýtið að börnin væru send í burtu áður en kom að bröndurunum“ hvíslaði ég að Hauki þegar gömul kona  svona með þeim eldri í hópnum stóð upp til þess að segja brandara. Einn var um titrara sem festist í konu, annar um tudda sem var leiddur til kvígu og fleira í þeim dúr.   Þær  leyna heldur betur á sér þessar gömlu svo mikið er víst.

Svo var drukkið kaffi og við hittum þarna fólk á okkar aldri, sem Haukur þekkir úr ræktinni á morgnanna og við vorum lengi að spjalla við þau – reyndar alveg þangað til við tókum eftir því að allir aðrir en starfsfólkið voru farnir.

Þetta var svo skemmtilegt og hvílík tilviljun að hún litla nafna mín skyldi einmittt koma í þetta eina skipti sem við höfum mætt í sönginn.

This entry was posted in Ýmislegt. Bookmark the permalink.

6 Responses to Svona eru tilviljanirnar oft skemmtilegar.

  1. Guðbjörg Oddsdóttir says:

    Skemmtileg tilviljun að hitta á Rögnu Björk þarna :0)
    Það er greinilega bara stuð á elliheimilunum, maður hefur heyrt ýmsar sögur.
    Kannski að gamla fólkið slái bara unglingunum út ;0)

    Eigðu góðan dag í rigningunni.

    Gubðjörg

  2. Var að lesa bloggið þitt og brá all verulega. Ég sendi þér alla góðu strauma sem ég á og er til staðar fyrir þig. Gangi þér/ykkur vel mín kæra með bestu kveðjum frá okkur bestimann.

  3. Ragna says:

    þakka þér fyrir Guðlaug mín. Mér hefur oft verið hugsað til þín þennan tíma síðan ég vissi um þetta. Nú vona ég bara að ég geti farið í gegnum þetta með sömu jákvæðni og glæsibrag og þú.
    Annars held ég enn fullkomlega ró minni og er að koma frá því að hlægja mikið að Hjónabandssælunni í Gamla Bíói, þar sem þau Edda Björgvins og Laddi fóru á kostum.
    Um að gera að finna eitthvað skemmtilegt að gera til að dreifa huganum frá þessu á meðan ég bíð eftir framhaldinu.
    Kær kveðja til þín og bestimann.

  4. Lofaðu mér að fylgjast með þér Ragna mín. Gulla

  5. Sigurrós says:

    Ragna Björk var líka alsæl að hafa fengið að hafa ömmu og afa hjá sér í söngnum og sagði mér frá þessu um leið og við hittumst eftir leikskóla 🙂

  6. Anna Bj. says:

    Skemmtilegt. Bestu kveðjur.

Skildu eftir svar