Öryrkjar – eldri borgarar og fleiri.

Já það er margt skrýtið í kýrhausnum og svo sem í hausnum á mér líka, það er nú ekkert ný frétt, en í vikunni sá ég  þessi ummæli um ADHD.

ADHD læknast við 18 ára aldur!!!!

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013, kafla 206, bls. 358 segir „Greiðsluþátttöku verður hætt í metýlfenidatlyfjum fyrir fullorðna enda eru lyfin einungis ætluð börnum og unglingum samkvæmt klínískum leiðbeiningum. Gert er ráð fyrir að útgjöld muni lækka um 220 m.kr. vegna þessa.“

Já, ADHD hverfur ekki á einni nóttu frekar en það sem segja má um örorku.  TR hefur hins vegar ákveðið skv. fyrirskipun að ofan, að þegar  öryrkjar verða 67 ára þá færist þeir upp í flokkinn aldraðir og mánaðarlaunin skuli lækka af því tilefni. Hvílík blessun að eiga það í vændum að sleppa við allt þetta örorkuvesen  eftir 67 ára  afmælisdaginn sinn og sleppa við  kostnaðinn sem fylgir endalausum meðferðum, lyfjum og fleiru sem fylgir því að vera með ónýtt stoðkerfi, slit og vefjagigt , auk annars sem öryrkjar þurfa að þola.  Að verða verkjalaus aldraður er miklu skemmtilegri tilhugsun og ekkert vesen við ferðir út og suður til lækninga þegar þeim aldri verður náð.  Lægri laun – Jú, hvað hafa 67 ára gamlir aldraðir að gera við peninga. Er ekki best að þeir breiði bara upp fyrir haus þegar þeir sjá ekki fram á að leysa út lyfin sín eða greiða annað sem viðkemur því að vera öryrki.  Hvernig er það annars, ætli  það sé hægt að fara í mál við TR ef það gengur ekki eftir að á 67 ára afmæli öryrkja  verði þeir heilir heilsu og losni við allan aukakostnaðinn af veikindum sínum?

Þetta kom nú svona upp í hugann í vikunni þegar ég fór að skoða greiðsluplan frá TR og sá að í desember lækkuðu greiðslurnar til mín, sem ekki voru nú háar fyrir.  Ég var bara svo heimsk og auðtrúa á velferðina, að ég hélt að velferðarstjórnin myndi sjá til þess að þegar ég kæmist á þennan aldur að geta talist öldruð, þá fengi ég a.m.k. jólabónus, þó ekki væri nema fyrir nafnbótina. Með greiðsluplaninu fylgdi lesning sem hefst svo:
„Tryggingastofnun vekur athygli á að þegar 67 ára aldri er náð breytast réttindi þín í ellilífeyri og tengdar greiðslur… Ellilífeyrir kemur til útborgunar fyrsta dag næsta mánaðar eftir að 67 ára aldri er náð“.  Já svo mörg voru þau orð.

Ég tek það fram að ég er ekki að kvarta persónulega, heldur benda á þetta óréttlæti sem varðar bæði aldraða öryrkja, þá sem hafa ADHD og  eiga að hætta að vera það við 18 ára aldur og sjálfsagt fleiri og fleiri.  Nú sá ég þetta bara beint á eigin skinni.

 

Annars hefur þetta verið

This entry was posted in Hugleiðingar mínar. Bookmark the permalink.

2 Responses to Öryrkjar – eldri borgarar og fleiri.

  1. Sigurrós says:

    Mikið svakalega verð ég reið að heyra um þessa vitleysu! >:( Held að þeir sem setja svona reglur ættu að skammast sín!

  2. Ragna says:

    Af því kommentin lenda yfirleitt á Facebook en ekki hér þá kópíeraði ég og set hér inn nokkur ummæli.

    Sigurrós Jóna Oddsdóttir Mikið svakalega verð ég reið að heyra um þessa vitleysu! Held að þeir sem setja svona reglur ættu að skammast sín!
    Og þetta með öryrkjana sem eiga að læknast á einni nóttu… Einhvern veginn minnir mig að einhver án útlims þurfi reglulega að mæta með vottorð um að útlimurinn hafi ekki vaxið á viðkomandi um áramót en vona að það sé misminni… Margret Snaebjornsdottir, heyrði ég þetta nokkuð hjá þér?
    fyrir 12 klst. síðan · Líkar þetta

    Svanfríður E.Arnardóttir Sigurrós-ég las líka í viðtali fyrir ekki löngu síðan, að foreldrar barns með downs heilkenni, þurftu að votta það hjá tryggingastofnun, að barnið væri ENN með downs.
    fyrir 11 klst. síðan · Líkar þetta

    Laufey Sigurðardóttir Alveg er það nú æðisleg frétt að öryrkjar verði bara heilir heilsu akkúrat við 67ára aldurinn. Þá sleppa þeir öllum lyfjum og læknisferðum það verður sparnaður á mörgum bæjum ,,,þetta er auðvitað það heimskasta kerfi sem við búum við, að eldra fólk þur…See More
    fyrir 9 klst. síðan · Líkar þetta

    Pálína Magnúsdóttir Síðast þegar ég skoðaði þetta breyttust greiðslur ekki við það að færast af örorku yfir á ellilífeyri og tengdar greiðslur. Skoðaði þetta fyrr á þessu ári og niðurstaða reiknivélar TR var sú sama fyrir einstakling, sem ekki hafði neinar aðrar tekjur né lífeyrisréttindi. Vera má að tekjutenging geti haft einhver áhrif.
    Fyrir um klukkustund · Líkar þetta

    Ragna Kristín Jónsdóttir Pála mín þetta er það sem breytist sbr. útreikninginn fyrir framan mig og lækkar þessar lágu greiðslur um 11.418.00 á mánuði eftir 67 ára afmælið, eða í útborgaðar um 25.000 krónur.
    Aldurstengd örorkuuppbót kr. 2059.- fellur niður og Tekjutrygging læk…See More
    Fyrir 2 mínútum · Líkar þetta

Skildu eftir svar