Þorláksmessa

Í dag er Þorláksmessa og árlega þennan dag minnist föðurfjölskylda dætranna minna fæðingardags tengdamömmu, sem var fædd á Þorláksmessu. Það er ljúft að minnast hennar tengdamóður minnar sem mér þótti frá því ég hitti hana fyrst ákaflega vænt um og mat hana mikils.

Ég ætla að setja hérna úrdrátt úr eldri færslu sem enn á við þennan dag og Lofti og Dröfn þakka ég af öllu mínu hjarta fyrir þann myndarskap og stórhug, að taka alla fjölskylduna í skötuveislu og saltfisk og síðan kaffiboð, hverja einustu Þorláksmessu. Fjölskyldan er líklega komin yfir fertugasta tuginn þegar makar eru meðtaldir og stöðugt bætist við ungviðið. Það væri ekki hægt að minnast hennar tengdamömmu á myndarlegri hátt. Blessuð sé minning hennar og hvíli hun í friði á Rangárvöllunum sínum.

… “ Það var alltaf  svo gaman  þegar fjölskyldan hittist í afmælinu hennar á Þorláksmessu. Í gamla daga var hún með kaffi  og kökur en hún fylgdist vel með tímanum og tískustraumum og þegar það komst í tísku að vera með skötu á Þorláksmessu,  þá  breytti mín snarlega yfir í það og bauð  fjölskyldunni í skötu á afmælinu sínu á meðan hún hafði heilsu til.
Nú fagnar hún tengdamamma blessunin ekki lengur með okkur  afmælisdeginum sínum  þannig að við sjáum hana,  en ég er viss um að hún er ekki  fjarri gleðskapnum þegar fjölskyldan hittist á hverri Þorláksmessu.  Loftur mágur minn og  Dröfn kona hans halda nefnilega við þessum skemmtilega sið  og af miklum rausnarskap  bjóða þau öllum afkomendum tengdamömmu og fylgifiskum í skötu og saltfisk á Þorlák. Þannig  minnumst við ömmu Böggu, eins og hún hefur verið kölluð síðan hún varð fyrst amma“

 

This entry was posted in Ýmislegt. Bookmark the permalink.

2 Responses to Þorláksmessa

  1. Sigurrós says:

    Það verður gaman að hittast í skötuboðinu eins og alltaf og já, ég er sammála því að amma verður pottþétt með okkur 🙂

  2. Elsku Ragna, við óskum þér og þínum gleði á jólum og góða heilsu. Heyrumst hressar.

Skildu eftir svar