Author: Ragna

  • Kuldaboli.

    Kuldaboli hefur hvílíkt verið að hamast hér fyrir utan og ég verð að játa að ég með mitt slæma kvef þori bara ekki einu sinni út með ruslið. Nú bara vona ég að eitthvað fari að slakna á hvorutveggja. Að kuldboli hypji sig og að fúkkalyfið fari að vinna sitt verk. Það varð ekkert af…

  • Borgarferð / kvef.

    Ég var í Reykjavík um síðustu helgi og fannst ég eins og túristi. Það er svo langt síðan ég hef farið í bæinn án þess að flýta mér bara að því sem ég þurfti að erinda og svo beint heim. Ég fór í bæinn á laugardag í samfloti með Hauki. Það var bæði skafrenningur og…

  • Betri tíð.

    Já nú er komin betri tíð – en þó ekki með blómum í haga.  Það er sem betur fer orðið fært til þess að fara út að ganga eins og við Haukur höfum gert bæði í gær og í dag. Maður verður reyndar að vera vel skóaður því stundum þarf að vaða vatnselginn en þetta…

  • Allt á kafi í snjó

    Það kom mér svo sem ekki á óvart í morgun að það var bókstaflega allt á kafi í snjó í kringum mig því það benti allt til þess í gærkvöldi. Snjórinn sem kom rétt fyrir áramótin er sko bara smá sýnishorn miðað við hvernig nú lítur út í kringum mig. Ég var með bílinn inni…

  • Bílaskoðun.

    Alveg getur maður nú verið ótrúlega ruglaður stundum. Við vorum að festa upp veggljós hérna í svefnherberginu í gær  þegar ég leit út um gluggann og tók þá eftir að lögreglan var eitthvað að stússa í kringum bílinn minn. Af því ég lenti nú í hremmingunum með mylluna um daginn þá ákvað ég nú að…

  • Alveg ótrúlegt!

    Ég er svo sár og reið að ég veit ekki mitt rjúkandi ráð.  Ég fór til Reykjavíkur í saumaklúbb í kvöld sem er nú ekki í frásögur færandi en á miðju kvöldi hringdi Edda systir mín til mín og sagði að nágrannakona sem býr á móti mér hefði séð þegar bíll kom og út fóru menn…

  • Sprengingar

    Þá er nú vonandi að mesta sprengjuregnið sé búið. Sem betur fer er ég ekki með smábörn sem hrökkva upp við hverja sprengingu en það er ótrúlegt hvað fólk heldur áfram langt fram eftir kvöldi á þrettándanum að sprengja restina af púðrinu. Ég fór út í Urðartjörn til Guðbjargar í kvöldmat og svo fórum við með…

  • Borgarferð /jólalok.

    Þá fer nú að fækka þessum blessuðu jóladögum. Þau eru alveg einstök þessi jól. Alla aðventuna er tilhlökkunin og ánægjan allsráðandi og yndislegt að skreyta hjá sér og undirbúa. Svo koma jóladagarnir sjálfir með góðum samvistum við sína nánustu og með miklum og góðum mat og tilheyrandi. Það má segja að það sé hápunkturinn, síðan…

  • Ég býð nýja árið velkomið.

    Gleðilegt ár. Þá eru áramótin afstaðin og spennandi að sjá hvað gerist á nýja árinu. Gærkvöldið var svona hefðbundið hjá okkur. Góður matur og ágætt skaup. Það varð ekkert af áramótabrennunni hérna. Við vorum búin að galla okkur upp í hverja flíkina yfir aðra svo okkur yrði nú ekki kalt en viti menn það var svo…

  • Hugleiðingar í árslok 2003.

    Já, þau nálgast óðfluga áramótin en á morgun er síðasti dagur ársins. Það er ýmislegt sem fer í gegnum hugann þegar litið er yfir árið sem nú kveður. Þetta hefur verið gott ár í flestu tilliti. Árið var varla byrjað þegar ég var komin með ungling þegar hún Dana María afastelpa Hauks var hjá mér í nokkra…