Author: Ragna

  • Austurferðin.

    Mikið er nú gott þegar ástæðan fyrir því að ég skrifa ekki í dagbókina mína er sú, að ég er svo upptekin af því að njóta þess að vera til og gera eitthvað skemmtilegt, að ég hef bara engan tíma haft til þess að sinna dagbókinni minni. Ég flaug til Egilsstaða um miðja síðustu viku…

  • Loksins, Loksins.

    Þá er loksins komið að því að ég fari af bæ og ferðist pínulítið þetta árið.  Nú er ég búin að jafna mig ágætlega eftir bakaðgerðina sem gerð var fyrir fjórum vikum, svo ég ætla að þiggja boð um að vera með Guðbjörgu, Magnúsi Má og börnunum á Egilsstöðum í vikutíma.  Ég treysti mér nú ekki til…

  • Fyrir 45 árum.

    Fyrir nákvæmlega 45 árum, árið 1964, var 25. júní líka á fimmtudegi eins og núna.  Sá dagur verður mér alltaf minnisstæður því þá gekk ég í hjónaband. Þegar ég skoða gamlar færslur á blogginu mínu fyrir þessa dagsetningu, þá sé ég að ég hef nú oft minnst á þessi tímamót í lífi mínu, svo ég set…

  • Óvænt og ekki óvænt.

     það var nú ekkert óvænt byrjunin því Þórunn og Palli frá Portúgal komu og fengu sér morgunsnarl hérna hjá okkur un hádegið og við áttum gott spjall saman að venju.   ——– Síðan skruppum við Sigurrós upp í Gufuneskirkjugarð í gær  því Sigurrós var með blóm sem hana langaði til að gróðursetja hjá pabba sínum og Ragna Björk…

  • Gleðilega þjóðhátíð 17. júní 2009

    Í dag fögnum við þjóðhátíðardeginum okkar. Reynum að gleyma öllu amstri og neikvæðni og njóta þess að vera saman og gleðjast í dag.

  • Að njóta.

    Þetta hefur verið góð og skemmtileg vika og ekki spillir veðrið sem er svona gott dag eftir dag.  Ég hef byrjað daginn á því að fara í göngutúr á meðan Haukur er í ræktinni og er mest búin að ganga ýmist í Kópavogi eða í Breiðholtinu. Ég kalla það landamærastíginn sem liggur hérna fyrir ofan…

  • Góðir dagar

    Mér finnst svo ótrúlegt að þetta sé bara dagur fimm eftir bakskurðinn. Ég verð að klípa mig öðru hvoru til að vera viss um að mig sé ekki bara að dreyma. Ég kann honum Aroni Björnssyni skurðlækni sem kom mér svona fljótt og vel til hjálpar eftir að ég leitaði til hans, kærar þakkir fyrir…

  • Allt gott að frétta.

    Ég er þakklát Sigurrós fyrir að hafa verið svona góð að setja inn smá fréttir og ykkur fryrir góðu kveðjurnar.  Nú ætla ég að stelast til þess að fara aðeins í tölvuna, er bara með hana hérna á eldhúsinnréttingunni því þá get ég staðið við hana. Ég kom heim í gær eftir sólarhring. Fyrir utan það…

  • Kær kveðja frá sjúklingi sem er smám saman að hressast

    Sigurrós (yngri dóttir) skrifar: Sæl verið þið, Ég ákvað að skrifa ykkur smá kveðju frá mömmu. Aðgerðin virðist hafa heppnast vel og mamma var farin að hressast nokkuð nú í kvöld þegar ég fór að heimsækja hana. Hún vill örugglega leyfa ykkur að fylgjast með svo að ég tek mér hér með það bessaleyfi að…

  • Einn dagur eftir í niðurtalningu fyrir bakaðgerðina.

    Jæja, það hefur allt gengið með hraði eftir að ég fékk tímann hjá honum Aroni Björnssyni skurðlækni. Hann sendi mig strax í segulómun, síðan kom um tveggja vikna bið og svo er bara komið að aðgerðinni.  Ég fór í undirbúning upp á  Borgarspítala á föstudaginn og var þar í á þriðja tíma og fékk ýmsar upplýsingar. Ég hélt…