Author: Ragna

  • Ýmsar sendingar í gangi.

     Þessa fékk ég senda í morgun og ætla að leyfa ykkur að lesa líka.  Þegar maður hringir á Klepp þá kemur sjálfvirkur símsvari: "Þú ert kominn í samband við Klepp. Ef þú hefur fjárfest í íslenskum bönkum, ýttu þá á einn.Ef þú ert farinn að hamstra matvæli í Bónus, ýttu á tvo. Ef þú heldur…

  • Yndislega fallegur dagur.

    Ég sit hérna við stóra eldhúsgluggann minn og horfi yfir fallega hvíta teppið sem máttarvöldin hafa lagt yfir nánasta umhverfið um helgina. Það er alveg heiðskírt og sólin um það bil að gægjast yfir hæðirnar hérna sunnan við. Ég sé að sólin hefur nú þegr náð að lýsa upp Keilinn og sjórinn er svo fallega…

  • Að halda sönsunum.

    Rosalega hef ég frá fáu að segja þegar ég hef verið heima án þess að fara nokkuð nema til læknis í á aðra viku. Hósta bara og hósta.   Ég er að verða talsvert leið á þessu en er að vona að nú fari þetta að lagast.  Það sem hefur hjálpað mér að halda sönsum þennan…

  • Dagurinn í dag.

    Ég hef haft sama bókamerkið í bókunum mínum í langan tíma. Ég er nú yfirleitt svo spennt fyrir lesefninu í bókinni sem ég les hverju sinni að ég hef ekkert verið að spá í textann á bókamerkinu nýlega. Ég fór hinsvegar að lesa hann aftur í morgun og  ætla að birta hann hér. Dagurinn í dager…

  • Allir að skrifa sig á indefence listann

    Eruð þið ekki öll búin að skrifa ykkur á ÞESSA SÍÐU?  Sýnum samstöðu. Sendum líka vinum okkar erlendis línu og biðjum þá að skrifa nafnið sitt og hugsa hlýtt til okkar.  Ég var að skrifa bestu ensku vinunum mínum og biðja þau að skrifa og senda síðan áfram. Það er svo auðvelt að finna nöfn…

  • Að morgni dags.

    Er að koma heim frá nýja heimilislækninum mínum hérna í Heilsugæslunni í Salahverfi og mér líst mjög vel á hann og sýnist hann traustur og athugull.  Hann sendi mig beint í öndunarpróf, sem ég var svo heppin að komast í hérna á Heilsugæslunni. Ég var mikið fegin því að þurfa ekki að flækjast eitthvert annað til þess,…

  • Á Krossgötum

      JA, HVAРER BEST AÐ AÐHYLLAST NÚ ÞEGR VIÐ STÖNDUM Á KROSSGÖTUM?  Ein vinkona mín sendi mér þetta áðan.  SÓSÍALISMIÞú átt 2 kýr.Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra. KOMMÚNISMIÞú átt 2 kýr.Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk. FASISMIÞú átt 2 kýr.Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk. NASISMIÞú átt 2 kýr.Ríkið tekur þær báðar…og skýtur þig…

  • Lasarus.

    Það er eins og maður eigi aldrei að ákveða hlutina fyrr en á síðustu stundu og alls ekki að hlakka til einhvers sem í vændum er. Ákveða bara að gera eitthvað með svo til engum fyrirvara þá gengur dæmið yfirleitt upp.   Ég var farin að hlakka til að komast til að dansa um helgina. Eina mannamótið sem…

  • Smá innlegg.

    Það er margt sem rekur á fjörur manns í tölvupósti þessa dagana. Flest miðar að því að létta okkur lífið í því ástandi sem er í þjóðfélaginu í dag. Margt hef ég áframsent á vini mína en margir eru á móti því að það rigni endalaus áframsendur póstur yfir þá svo ég er nú að…

  • Á valdi notalegra minninga um gamlan tíma.

    Ég fór í smábíltúr eftir hádegið að sinna erindum í gamla hverfinu mínu 104.  Ég fór m.a. að hitta þjónustufulltrúann  í  bankanum mínum sem ég hef haldið tryggð við frá því ég var sex ára gömul og ætla mér að gera áfram. Þetta er auðvitað ekkert í frásöguir færandi frekar en hugleiðing mín í þessari ferð. En,…