Author: Ragna

  • Vandræðalegur misskilningur.

    Ég má til með að segja ykkur frá smá atviki sem átti sér stað hérna um helgina. Þegar ég kom heim á föstudaginn frá því að passa hann nafna minn, þá sagði Haukur að Jóhanna hérna niðri hefði hringt og ætlað að fá mig út að ganga með sér. Hún hefði sagt að hún væri ódugleg að…

  • Spaugstofan.

    Mikið rosalega voru þeir góðir spaugstofumennirnir í kvöld.  Það veitir sko ekki af að sjá spaugilegu hliðarnar á tilverunni líka og lengja lífið með hlátri. Piparkökusöngurinn verður sko ógleymanlegur og afgreiðslan í bankanum frábær, og….og…. 🙂 Er ekki sagt að öll mál hafi tvær hliðar. Nú fengum við sko heldur betur að kynnast hinni hliðinni.  Takk…

  • Góða helgi.

     Við gleymdum okkur yfir því að horfa á skemmtilega dagskrá í sjónvarpinu í kvöld. Útsvarið er t.d. alveg frábær skemmtun á föstudagskvöldunum.   Ég svaf hinsvegar stóran hluta af Rebus, sem er þó í miklu uppáhaldi hjá mér.  Kannski var ég svona syfjuð af því ég hef verið að fara á fætur fyrir klukkan sjö í…

  • Brosfaraldur.

    þETTA FÉKK ÉG LÍKA SENT OG FINNST ÞAÐ EIGA ERINDI VIÐ OKKUR Í DAG.  Ég gerði merkilega uppgötvun í dag. Ég uppgötvaði að bros er jafnsmitandi og flensa. Það brosti til mín alókunnugur maður og ég brosti á móti og hélt svo bara áfram að brosa. Ég labbaði fyrir næsta horn þar sem ég mætti öðrum…

  • Kannski á ekki að gantast

    en hjálpar það okkur ekki einmitt í öllum þrengingunum að geta fundið eitthvað til þess að brosa að.  Þessi orðasamsetning, sem vinkona sendi mér í gær, er bara of góð til að sitja á henni og leyfa ekki öðrum að sjá með sér. An American said:   "We have George Bush, Stevie Wonder,    Bob Hope,and Johnny Cash."  And the…

  • Skeður það svona?

    Eftir að Íslendingar hafa gjörsamlega gleymt sér í peningasukki undanfarin ár, flogið á einkaþotum milli heimshorna í leit að heppilegum fyrirtækjum til kaups, til auka enn á eigur sínar, og reynt að toppa bílaeign hvers annars, að ekki sé nú talað um allar glæsivillurnar og risastóru sumarhúsin,  þá ganga þeir sömu nú niðurlútir og daprir á…

  • Fallegar vísur

    Hún Björk tengdamamma hennar Sigurrósar sendi mér þessar fallegu vísur í morgun og vitanlega leyfi ég ykkur að njóta þeirra með mér.        Gulli og perlum að safna sér,sumir endalaust reyna,  vita ekki að vináttan er,  verðmætust eðalsteina.     Gull á ég ekki að gefa þér  og gimsteina ekki neina.        En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. Höf: Hjálmar…

  • Tæknin er frábær.

    Gungur sem halda að þær geti falið sig undir tilbúnum nöfnum og gert þannig árásir á heimasíður átta sig ekki á því að tæknin er nú einu sinni þannig að það er hægt að rekja úr hvaða tölvu óhróðurinn er sendur.  Ég hef orðið fyrir mjög ómaklegum árásum á síðunni minni undanfarna daga. Ég hef eytt…

  • Þjóðarskútan

    Það er ískyggilegt ástandið á þjóðarskútunni okkar Frónbúa núna þegar hana rekur stjórnlaust um þennan ólgusjó með rifin segl og langt til lands.  Það eina sem við vitum er að björgunarbátur hefur verið sjósettur og við vonum bara að hann nái sem fyrst til björgunar, og þá sérstaklega til þess að bjarga unga fólkinu með börnin. Í ljósi frétta…

  • Agndofa

    Stundum verður maður svo undrandi að það er erfitt að finna orð til þess að lýsa undrun sinni. Þannig leið mér í gær þegar ég sá mjög undarleg skilaboð í orðabelgnum hjá mér við frásögn mína af ferðinni austur í jarðarför mömmu hans Hauks. Ég eyddi þessum skilaboðum út eftir að hafa afritað þau og ég…