Author: Ragna

  • Þakklát.

    Já ég er aldeilis heppin núna að vera flutt í Kópavoginn, og hafa ekki þurft að upplifa þessa miklu jarðskjálfta á Árborgarsvæðinu. Það var gengið frá afsali fyrir Fensalina eftir hádegi í gær og á leiðinni heim frá því þá höfðum við  komið við í nýju Krónubúðinni hérna í Lindunum. Þegar skjálftinn reið yfir þá vorum við nýkomin…

  • Ungviðið.

    Jæja þá er ég orðin það hress að ég náði að setja inn myndirnar mínar.   Á fimmtudaginn var, þá fór ég austur á Selfoss til þess að vera með litla snúðinn til hádegis. Hann varð að vera fastandi fyrir nefkirtlatöku og rör í eyrun  svo amma var sett í það embætti að passa að hann…

  • Eitt það versta sem ég veit

    er að fá magapestir. Ég fæ þær reyndar mjög sjaldan en verð mjög veik þegar ég fæ slíkar pestir.  Ég er einmitt í dag að ná mér eftir eina all hastarlega. Það er ekki hægt að hugsa sé verra og ógeðfelldara ástand en það, þegar það gengur upp úr manni og niður á sama tíma. Ekki nóg…

  • Tíu ára gömul ferðasaga.

    Í samtali mínu í dag við mágkonu mína í Bandaríkjunum þá rifjaðist upp gömul ferðasaga. Fyrir nákvæmlega 10 árum lagði ég upp í mitt fyrsta og eina ferðalag sem ég hef farið í til Bandaríkjanna. Ég fór með flugi sem hét Canada 2000 en það flaug milli Canada og Evrópu með stuttri millilendingu á Íslandi bara rétt…

  • Bara úr einu í annað.

    Ég get orðið svo urrandi reið þegar ég lendi í því að skrifa langa færslu, reka mig svo óvart í eitthvað á tölvuborðinu og allt er horfið sem ég hafði skrifað. Þessu lenti ég í fyrr í kvöld og til að ná mér niður þá skellti ég aftur tölvunni, fór fram og skellti síðan á…

  • Dönsum okkur inn í sumarið.

    Hún litla nafna mín gerir það alla vega með glæsibrag, eins og sjá má á þessu myndbandi af henni. Nú er allt orðið svo grænt og fallegt og unun að sjá hvað allt breytir um svip.  Börnin hafa nú tekið fram hjólin sín, boltana, sippuböndin og hjólabrettin. Fólk er orðið léttklæddara og ég er ekki…

  • Rögnur

    Ég var að velta því fyrir mér hvað ég hitti orðið oft nöfnur mínar.  Árum saman þá varla hitti ég aðra Rögnu og þegar ég sagði til nafns var ég oft spurð " Já en hvað heitirðu? heitir þú Ragnheiður eða Ragnhildur?  Ragna var einfaldlega talið gælunafn. Nú er ég alltaf að rekast á Rögnur.…

  • 7-9-13

    og bankað þrisvar í tré svona til öryggis. Ég held nefnilega að ég sé að lagast í bakinu – loksins. Ég hef verið áberandi betri síðustu daga og vona að framhald verði á. Hann litli nafni minn er hinsvegar búinn að vera svo hundlasinn eins og mamma hans lýsir hér.   Oddur og Karlotta komu óvænt…

  • Óvænta afmælisveislan í dag.

    Hún Sonja í saumaklúkbbnum varð 70 ára í gær föstudag. Það hittist nú svo á að það var saumaklúbbur hjá henni á mánudaginn og þá spurðum við hana hvort hún ætlaði að halda eitthvað uppá afmælið á föstudaginn. Nei, hún sagðist bara ekki nenna að hugsa um það og ætlaði bara að vera heima í rólegheitunum…

  • Engin fyrirsögn.

    Það er nú ýmislegt á döfinni og það er gaman að eiga góða hluti í vændum, en ég ætla samt að vera svo vond að draga ykkur aðeins á frekari fréttum. —————————– Enn er ég ófær um að taka þátt í líkamsræktinni og dansinum vegna fjárans brjósklosins sem enn vill ekki gefa sig, en þrátt fyrir allt…