Author: Ragna

  •        Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk.   Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á   kjammann.   Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn; "Í DAG   GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!"   Þeir gengu…

  • Fíll í postulínsbúð.

    Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt en ég vona svo sannarlega að í því tilviki sem hér um ræðir þá sannist máltækið að "æfingin skapi meistarann". Við systur drifum okkur í línudans í kvöld. Námskeiðið byrjaði reyndar á mánudaginn var en ég komst ekki í fyrsta tímann. Það var fullur salur af dönsurum, bæði byrjendum…

  • Kærar þakkir Alcan fyrir skemmtilega tónleika og veisluna á eftir.

    Enn einu sinni gerir Ísal (Alcan) vel við starfsfólkið sitt. Haukur fékk um daginn senda tvo miða sem giltu á tónleika Björgvins Halldórssonar og Sinfóníuhljómsveitarinnar í Laugardalshöllinni í dag og léttar veitingar í hliðarsal á eftir. Nú hittist þannig á að Haukur var á kvöldvakt og gat ekki fengið því breytt. Mér datt því í…

  • Gott að koma heim eftir skemmtilegt kvöld í borginni.

    Það er alltaf svo gott að koma heim en aldrei eins gott og þegar ég er búin að keyra heim í myrkri úr Reykjavík. Það liggur við að ég fái svona panikk tilfinningu fyrst eftir að borgarljósanna nýtur ekki lengur við og ég ek ein áfram í myrkrinu svo smá líður þetta nú hjá eftir…

  • Tíminn líður svo hratt.

    Af hverju ætli tíminn líði svona hratt? Jú, ég hef eina skýringu. Það er bara svo margt skemmtilegt að gerast þessa dagana. Afmælið hans Lofts var nú toppurinn um helgina, síðan tók hvað við af öðru. Sigurrós og Jói komu hingað úr afmælinu hans Lofts og voru fram á sunnudaginn. Á mánudaginn kom Ingunn mágkona…

  • Mikið mikið gaman og mikið mikið grín.

    Ég á eftir að lifa lengi á afmælisveislunni hans mágs míns, sem ég fór í á laugardagskvöldið. Þetta er sú skemmtilegasta veisla (að öllum öðrum ólöstuðum) sem ég hef tekið þátt í og mig var farið að verkja í andlitið af öllum hlátrinum því það var svo mikið hlegið, nánast alveg út í eitt –…

  • Fimmtugur kappinn.

    Hann Loftur Þór mágur minn á afmæli í dag – stórafmæli 50 ára. Mér er alltaf minnisstætt þegar ég hitti Loft fyrst, en það var þegar ég kom, feimin 16 ára stúlkukind með stóra bróður hans til að hitta fjölskylduna í fyrsta skipti. Loftur var þá nýorðinn 6 ára gamall. Sjálf átti ég engin yngri…

  • Rússibanaferðin á enda.

    Jæja þá er rússibanaferðinni í Rock Star Supernova lokið. Sjálfsagt erum við íslendingar öll mjög sátt við þessi endalok, nema hvað mér frannst Dilana eiga að verða fyrir valinu því ég hef ekki verið hrifin af Lúkasi.  Magni fékk að vera með til síðastas þáttar enda er hann frábær tónlistarmaður og söngvari. Ég veit ekki…

  • Öfugsnúið.

    Kannist þið við svona daga þegar allt virðist svo öfugsnúið. Ég var auðvitað grútmygluð þegar ég vaknaði í morgun og get vitanlega kennt sjálfri mér um það því ég svaf illa í fyrrinótt og var svo að vaka frameftir í nótt að kjósa hann Magna svo hann gæti verið með á lokasprettinum í Supernova. Ég…

  • Magnað kvöld – Kjósum Magna.

    Já það er sko Magnað kvöld framundan og ég ætla að taka þátt í því með stæl. Reyndar verð ég bara ein í partýinu því Haukur er farinn í bæinn að vinna en ég ætla að horfa á hann Magna slá í gegn í Rock Star Supernova og kjósa svo villt og galið á eftir.…