Author: Ragna

  • DV – og ekki í fyrsta skipti……

    Vonandi hætta þeir, sem ekki eru nú þegar hættir að kaupa og lesa DV, að kaupa þetta samviskulausa blað. Ég veit ekki hvort fréttin um afleiðingu fréttar DV í gær gerir mann orðlausan en ég er búin að sitja og horfa á lyklaborðið og skjáinn til skiptis, skrifa nokkur orð um málefni dagsins og eyða þeim aftur.…

  • Myrkrið hopar fyrir dagsbirtunni.

    Bara svona til þess að sýna okkur að það kemur að því að dagsbirtan lengist og tekur yfir myrkrið sem hefur umlukið okkur síðustu vikur þá sýndi himininn þetta sjónarspil um  hádegisbilið í dag.

  • Jólin komin í geymsluna og jólasveinarinir til fjalla.

    Gærdagurinn fór í að taka saman allt jóladótið og pakka því niður til næstu jóla og þrífa á eftir. Við byrjuðum strax í gærmorgun og vorum rétt búin að klára nógu snemma til þess að fara á þrettándabrennuna sem hafði verið frestað í sólarhring. Eins og veðrið var fallegt í gær þá gekk á með éljum og eitt slíkt…

  • Á Patreksfirði.

    Af því að ég er nú farin að tala um hana bestu vinkonu mína þá kom upp í hugann sumarið sem við fórum til að vinna í fiski á Patreksfirði. Pabbi skólasystur Eddu Garðars úr Kvennaskólanum var verkstjóri í frystihúsinu á Patreksfirði og þar vantaði fólk til sumarvinnu. Helga skólasystir Eddu ætlaði að fara og…

  • Smá brella.

    Oft smitast maður af því að lesa það sem hinir eru að skrifa. Þegar ég var að lesa um bernskubrek Svanfríðar og vangavelturnar um það hvort maður ætti að halda áfram svona prakkarastrikum þegar maður er orðinn fullorðinn þá kom upp í huga mér smábrella sem ég gerði bestu vinkonu minni. Þannig er að ég þurfti…

  • Eftir áramót.

    Nú fer lífið svona smám saman að komast í eðlilegt horf og það liggur við að  ég finni fyrir nokkurri tilhlökkun  þegar ég hugsa til þess að um helgina taki ég allt jóladótið  og pakki því niður í kassa, þrífi vel og taki svo aftur upp dótið sem fyrir var. Þó eru þetta blendnar tilfinningar…

  • Til hamingju með nýja vefinn Sigurrós mín.

    Nú er Sigurrós komin með nýtt útlit á vefsíðuna sína, það birtist fyrst þann 1. janúar. Það kennir margra grasa hjá henni og ég hef oft heyrt um þá sem hafa notað sér glósur og annað  sem hún á í fórum sínum. Svo er hún líka með sögur sem hún hefur samið ýmist ein eða með samkennurum til að nota…

  • Áramótin í höfuðstaðnum.

    Við fórum strax klukkan eitt á gamlársdag af stað til borgarinnar til að vera þar um áramótin. Þegar við komum að Hveragerði sáum við stóran flottan flugeld æða upp á himininn. Mér varð þá að orði að það væri aldeilis, við færum bara fram hjá Hveragerði með viðhöfn. Í fyrstu var ljós reykurinn sem kom…

  • Við áramót.

    Við áramót staldrar maður við og hugsar um það hvernig komandi ár muni verða – ekki það að auðvitað hefur maður lítið um það að segja sjálfur, en samt leiðir maður hugann að því. Alla vega er ég farin að hugsa um það hvernig kirsuberjatréð mitt kemur undan vetri og hvað það verður fallegt þegar það…

  • Þorði ekki að segja frá fyrr en nú.

    Við Selfossfólkið fórum í borgarferð í dag. Það er nú varla að ég þori að segja ykkur tilefnið, eins og ég er búin að predika um að passa sig á lifandi kertaljósum og öllu því. En ég vil vera heiðarleg við dagbókina mína og verð þessvegna að skrifa í hana bæði það sem kemur sér…