VÆLUKJÓINN Í KÓPAVOGINUM.

Já hann er órór núna vælukjóinn og ég finn ekki símanúmerið hjá vælubílnum. Ég hef því ákveðið að viðurkenna viðurnefnið, sem ég gaf mér reyndar sjálf, og ætla að leyfa mér að væla eins og mig lystir hérna á heimasíðunni minni, mér og mínum að meinalausu.  Hvar annars staðar en í eigin dagbók getur maður vælt og vælt eins og mann listir.

Ég var að  kikja á gamlar heimildir hjá mér og sé að það er rétt sem mig minnir að ég hef áður verið að berjast við veikindi dagana fyrir utanlandsferðir.

Nú er ég búin að vera með þetta astmakvef í fimm daga þrátt fyrir stanslausa drykkju á alls konar engifer og hvítlauksseyðum og það versnar bara með hverjum deginum. Nú er ég komin á stóran 12 daga stersakammt í viðbót við Citromaxið. ( Þegar ég les þessa setningu yfir dettur mér strax í hug jólavísan hjá Ladda þegar jóli var að senda þeim mæðginunum hverja sendinguna af annarri)  Jæja áfram með væluna.  Ég er með öndunarmæli þar sem ég mælist 200 í útöndun, en læknirinn sagði í morgun að ég þyrfti að komast í 380. Ég á því verk að vinna að ná að dýpka öndinina þó það sé hægara sagt en gert því í hverri útöndun fæ ég hóstakast.  Ég á að tala við lækninn aftur á mánudag og ef ég verð ekki komin í sæmilegt ástand þá, þá sagðist hann skrifa út vottorð svo ég fengi ferðina endurgreidda. Úps, ég vona að ekki komi til þess þó ég sé í raun alveg tilbúin að sætta mig við það,  því í svona ástandi er nefnilega hábölvað að fara í sex klukkutíma flug.

Sumarfötin sem ég var búin að taka  ofan úr skáp liggja eins og hráviði út um allt hérna í herberginu hjá mér og ég bara kemst ekki í gírinn til þess að finna út hvað ég ætla að taka með mér og hvað ég ætla að skilja eftir heima.  Nú verður örugglega bara einhverju hent niður á síðustu stundu, en ekki pakkað niður og tekið upp aftur svona þrisvar sinnum eins og venjulega þegar ég kemst að því að ég hef fyllt mín 20 kíló í töskuna áður en ég fer að heiman.  Það er nefnilega alltaf þessi hugsun að  kannski myndi ég vilja fara í þetta og kannski myndi ég nota hitt og svo er allt sett niður í fyrsta umgangi. Meira endemis ruglið.

Nei nú er spurningin bara fer ég á þriðjudaginn til þess að ganga um götur í sól og blíðu á sandölum og í ermastuttum bol, eða verð ég áfram heima í úlpunni með hettu fram í augu að ógleymdum stígvélum sem hafa verið staðalbúnaður hér í allan vetur  – svo einfalt er nú það.

Enn einu sinni hafði snjóað einhver ósköp þegar við litum út um gluggann í morgun. Haukur ákvað að fara ekki í ræktina heldur fara frekar út að moka snjó og keyra mig svo á jeppanum niður á heilsugæslu. það var mjög gott því bíllinn minn er falinn undir þykkum snjóhjúp  hérna fyrir framan.  Sem betur fer komu þeir hjá Kópavogsbæ nokkuð fljótt til þess að moka götuna og þeir eiga heiður skilið fyrir það hvað þeir hafa yfirleitt verið  fljótir að koma til að ryðja göturnar hérna. Vonandi að þeir verði eins fljótir að leysa  hnútinn sem kominn er á samstarfið hjá þeim blessuðum.
Þetta er svo sem svipað hjá þeim og á kærleiksheimilinu í gamla svarta húsinu við Austurvöllinn, þar sem hver er upp á móti öðrum, þó samherjar eigi að heita.  Já ég held að á þeim bæ ættu þeir að biðja um lögskilnað, fara allir að heiman og láta sótthreinsa  staðinn. Tíu til fimmtan manns sem hafa vit á hlutunum án pólitískrar truflunar ættu að fást til þess að stjórna heimilinu og koma hlutunum í lag. Þessir 63 íbúar virðast allir vanhæfir til slíks.

Við skulum nú sjá – hef ég nokkuð meira til þess að væla yfir?  Alla vega ekki alveg strax, en Guð má vita hvernig leikurinn við Spánverja gengur í sjónvarpinu núna – Ég hafði ekki taugar til þess að horfa á hann, heyri bara óminn af örvæntingarópunum öðru hvoru.

Ég held ég láti þetta bara duga í bili og svei mér ef mér líður ekki bara betur á eftir. Ég hringi bara í vælubílinn seinna.

 

This entry was posted in Ýmislegt. Bookmark the permalink.

8 Responses to VÆLUKJÓINN Í KÓPAVOGINUM.

  1. Guðbjörg Oddsdóttir says:

    113 – vælubíllinn :0)

    Vældu bara mamma mín, þú hefur alveg unnið fyrir því. Mátt líka alveg hringja í mig og skal hlusta þolinmóð, þú átt það örugglega inni hjá mér ;0)
    Þú verður orðin betri og kemur þér í sólina.

    Frumburðurinn

  2. Dandý says:

    Didda mín vonandi hressist þú og kemst í sólina, eina sem þarf að muna eftir (meðul, passan,og kreditkort) annað reddast, bara lítið af fötum, það sem við ætlum kannski að nota (notum við ekki) en það veistu 🙂 hugsa til ykkar kv Dandý

  3. Ragna says:

    Já stelpur mínar þakka ykkur fyrir. Já auðvitað held ég í vonina eins lengi og mögulegt er. Heilsan er fyrir öllu, en fatalepparnir fara svo einhvern veginn niður.Ef ég væri að fara í hús eða íbúð þá myndi ég bara skella stuttbuxum og bolum í töskuna, en það er alltaf öðruvísi að mæta daglega uppábúinn í matsal á hótelinu á kvöldinn og vera á kvöldskemmtunum þar. Það krefst svolítið flóknari pökkunar, svo ef af ferðinni verður þá verðum við í þrjár vikur. Það allt annað þegar maður er með íbúð og skellir í þvottavél eftir þörfum, en að vera í hálfu fæði á hóteli.
    Þetta kemur allt, ég spái því að á laugardag finni ég mun á mér.

  4. Anna Sigga says:

    Ég skal gera mitt til að hjálpa þér út í sól og yl með því að muna eftir þér í bænum mínum, Ragna mín. Og hafðu svo þökk fyrir alla pistlana þína. Er ekki alveg nógu dugleg að skilja eftir kveðju til þín en í kíki við reglulega og hef mjög gaman af lestrinum. Þú hefur líka svo skemmtilega skrifstíl. Kv. og knús til þín og þinna!!! 🙂

  5. Ragna says:

    Þakka þér fyrir Anna Sigga mín. Það er alltaf gott að vita af góðum bænum og óskum sér til handa. Það eru fjórir dagar þar til læknirinn sker úr um það hvort ég fer eða fer ekki. Þetta gengur hægt, en best að örvænta ekki alveg strax – kraftaverkin gerast – ekki satt.

  6. Nú taka allir höndum saman og senda „batn“ kveðjur. Þú einfaldlega verður orðin góð um helgina með kærri kveðju úr snjó í snjó.

  7. Linda says:

    Þú vonandi nærð þessum fjanda úr þér og færð grænt ljós frá lækninum 😉 og það má bara alveg væla á sínu eigin bloggi og hana nú! ;))

  8. Svanfríður says:

    Heitir þetta nokkuð væl? Ertu ekki bara að segja frá staðreyndum í þínu lífi? Ég vona að þú verðir brátt orðin góð og að þú komist til útlanda og njótir ylsins. Batakveðjur úr Cary.

Skildu eftir svar