LSH s.l. nótt og aðgerðardagur kominn.

Jú við höfum verið dugleg að skreppa eitthvað og gera eitthvað skemmtilegt þessa dagana.  Í gær fórum við í bíltúr austur yfir fjall, fórum Þrengslin og byrjuðum á því að skoða málverkasýningu Jóns Inga mágs míns, sem heldur nú sýningu á vatnslitamyndum í Gónhól á Eyrarbakka. svo hringsóluðum við svona aðeins um sveitina og fórum svo heim og fengum okkur kaffi. Haukur nefndi nú ýmsa staði til þess að fá sér kaffi á, en ég var bara ekki alveg í stuði til þess – það gerist nú ekki oft að mig langi ekki á kaffihús, en við enduðum sem sé á að fá okkur kaffisopa þegar við  komum heim.  Ég var bara eitthvað þreytt og slöpp, en dreif mig þó í að baka nokkrar  muffinskökur  http://ragna.betra.is/?page_id=2751 til þess að fá mér í kaffitímanum og til þess að taka með mér þar sem ég fer í kaffi.

Eftir kvöldmat var ég  svo búin að vera  í tölvunni, í einhverju  brasi með tengla á heimasíðunni minni,  þegar mér fór að allt í einu að líða eitthvað undarlega. Fór fram og ætlaði á klósettið en fann þá að ég var að líða út af og komst beint inn í rúm og náði að kalla á Hauk. Ég reyndi síðan í þrjú skipti en um leið og ég stóð upp ætlaði alltaf að líða yfir mig aftur og mér leið ömurlega og var óglatt. Ég mældi blóðþrýstinginn og hann hékk í hundrað en neðri mörkin voru í 57.

Á þessu stigi þorði ég ekki annað en að tala við þá í 112 og þeir vildu endilega koma til mín og svo varð það þeirra mat að fara með mig niður á bráðavakt.  Ég átti nú von að að þeir yrðu fljótir að senda þessa móðursjúku kellingu heim aftur, en þegr búið var að fá niðurstöðu úr blóðprufum kom í ljós að ég var orðin allt of lág í natríum, sem skýrði ástandið. Fyrst var haldið að ég væri með einhverja pest (ég trúði reyndar ekki á það sjálf) og sýni voru send í ræktun og ég átti að liggja inni á einangrun í nokkra daga þangað til fyrir lægi hvað kæmi út úr þeim.  Ég var því flutt á einangrunatstofu,  með nitríum í æð og var þar í nótt og fram á miðjan dag í dag. Í nótt leið mér á tímabili svo illa vegna flökurleika og yfirliðatilfinningar og þá fór blóðþrýstingurinn í 77/40, sem er auðvitað hvort tveggja helmingi lægra en eðlilegt er.

Um miðjan dag í dag var ég hinsvegar komin upp í 106/60 í blóðþrýsting og þá var ég  búin að fá líklega þrjá poka af nitrium í æð. Enn vantar þó uppá að það sé nægjanlega mikið, en það var nóg til þess að ég mátti fara heim uppá það að koma aftur strax ef þetta gerist aftur. Heimilislæknirinn þarf svo að láta taka blóðprufur og fylgjast með blóðþrýstingnum næstu tvær vikur.

Ég fékk í dag hringingu frá innrituninni á LSH. Fyrsti lausi aðgerðardagurinn sem er laus á skurðstofu fyrir 5 tíma aðgerð, er 4. júní, svo enn reynir á þolinmæðina, en eins og við vitum þá vinnur hún þrautir allar svo við tökum því eins og öðru.

Ég sagði nú þegar ég kom heim að auðvitað væri hægt að sjá ljósan punkt í þessari nýju frestum. Fyrst ég varð allt í einu svona lág í natrium – málmsöltum  sem líkamanum eru lífsnauðsynleg, þá er nú betra að hafa þennan tíma fram að aðgerð til þess að vinna bug á því. Ég segi sem fyrr að það er forsjónin sem stjórnar og raðar niður a.m.k. í mínu lífi.

Ég hef þá trú að allt lyfjaátið og sterarnir sem ég tók í janúar og febrúar hafi skapað mikinn ójöfnuð í líkamanum, en nú vinn ég að því hörðum höndum að koma jafnvægi á allt aftur.

Þar til næst, þá segi ég bara góða helgi og líði ykkur öllum vel.

This entry was posted in Helstu fréttir.. Bookmark the permalink.

8 Responses to LSH s.l. nótt og aðgerðardagur kominn.

  1. Katla says:

    Elsku Ragna, það hlýtur að vera ákveðinn léttir að vera búin að fá staðfestan aðgerðardag. Aldrei vantar bjartsýnina hjá þér, sama hvað á gengur. Hjartans kveðjur.

  2. Linda says:

    Alveg ótrúlegt hvað þú ert dugleg Ragna mín og bjartsýn.. Ert fyrirmynd fyrir okkur öll..
    Vona að þú náir jafnvægi í líkamann fljótlega og þér fari að líða betur..
    Stuðningskveðjur úr Sandý
    Linda

  3. þórunn says:

    Þú færð að reyna margt og mikið Ragna mín, en gott að það var vel tekið á móti þér í þetta sinn, á bráðavaktinni. Það er líka gott að vera búin að fá dagsetninguna á aðgerðina, þá verður virkilega hægt að fara að takast á við framhaldið. Getur þessi röskun á líkamsstarfseminni nokkuð stafað af því hvað þú hefur tekið vinkilbeyju í því sem þú lætur ofaní þig? Maður þarf víst að passa mjög vel uppá að fá öll efni sem líkaminn þarfnast. Þetta eru nú bara vangaveltur hjá mér, ég veit að þú hugsar um þetta allt. Eigðu góða helgi, bestu kveðjur, Þórunn

  4. Ragna says:

    Þórunn mín. Ég spurði að þessu með breytta mataræðið upp á spítala og það er ekkert í því mataræði sem ég er að borða sem hefur raskað þessu. Ég sleppi bara sykri, mjólk og mjöli en borða allt annað sem fyrirfinnst,svo lengi sem það er ekki unninn matur, því hann er fullur af eiturefnum skilst mér. Þau könnuðust við þetta mataræði og voru bara ánægð með það.
    þegar ég kom heim þá fletti ég því upp og sá að að mest er af þessum efnum í t.d. í rauðrófum og gulrótum, en ég elska gulrætur og borða margar á dag. Rauðrófur finnst mér líka mjög góðar og borða með kjöti. Það er bara eitthvað annað sem veldur þessu og það þarf að finna hvað það er.

  5. Það á ekki af þér að ganga mín kæra. Farðu vel með þig og vonandi finnst „sökudólgurinn“ sem fyrst með kærri kveðju frá okkur Bróa

  6. Anna Bj. says:

    Elsku Ragna, trúi og vona að komið verði jafnvægi á líkama þinn þegar að aðgerðinni kemur. Hittumst glaðar hjá Sonju síðar í vikunni. :))

  7. Ragna says:

    Ég þori nú ekki einu sinni að setja það í status hjá mér, en ég er líka alveg að farast í bakinu þessa dagana. Líklega gamalt brjósklos sem ekki var hægt að gera við á sínum tíma, sem heldur að nú sé tækifærið til að láta á sér kræla aftur af því ég er hvort sem er í lamasessi. Það var nú ekkert þægilegur eða góður fyrir bakið bekkurinn grótharði sem ég lá á þarna a Bráðavaktinni, þó allir væru rosalega góðir við mig í þetta skiptið. Það átti alltaf að fara að leggja mig inn á deild, en svo varð ekkert af því. Þannig að ég lá bara á þessum skoðunarbekk í sólarhring.

    Allt stendur þetta nú samt til bóta og í staðinn fyrir að verða eins og gamall ónýtur bíll sem á að fara á haugana, þá verð ég eins og ónýtur gamall bíll sem er gerður upp og verðu betri og flottari en nýr 🙂

  8. þórunn says:

    Þetta var gott að heyra Ragna mín, og gott að læknarnir könnuðust við þessa tegund matarræðis og að þeir gáfu því góða einkunn. Þú verður flott þegar búið verður að gera þig upp. Bestu kveðjur. 🙂

Skildu eftir svar