Author: Ragna

  • Gleðifréttir dagsins. Jibbí.

    Jibbí!  Ég vissi að það borgaði sig að vera jákvæð allan tímann og taka ekki út neinar áhyggjur fyrirfram. Ég hitti sem sagt lækninn í dag .  Hann gaf mér góða einkunnog sagði að það hefði verið góð ákvörðun hjá okkur að taka allt brjóstið því í því var 4 cm æxli ( sem upphaflega…

  • Svo glöð og frjáls – Alltaf eitthvað smá spes þó.

    Það komu skilaboð frá Kristjáni Skúla skurðlækni um að það yrði að taka drenin, þó svo að annað væri enn yfir 100 og hitt kringum 50 .   Hjúkrunarfræðingur hérna á sjúkrahótelinu kom og framkvæmdi þetta svo áðan. Já, alltaf þarf maður nú að vera eitthvað svolítið spes og öðru vísi en aðrir  Fyrst var…

  • Mánudagur á sjúkrahótelinu.

    Alveg vissi ég að dagurinn í dag yrði góður. Lystin að koma og allt bjartara yfir. Í hádeginu var var svo góður léttsteiktur fiskur og hrásalat með, svo ekki þurfti ég nú að kvarta yfir því að fá ekki góða hollustu.   Svo kom Edda Garðars og fór með mér í Stoð í Hafnarfirði  þar sem…

  • Brosandi við tölvuna á sunnudegi 10. júní 2012

    Ég hef fengið svo ótalmargar kveðjur frá ykkur, sem ég er svo óendanlega þakklát fyrir og  sendi góðar kveðjur og knús til baka til ykkar. Nú er ég farin að geta brosað að hinu og þessu sem hefur gerst í vikunni, eins og t.d. þessu, sem ég var að skrifa við komment frá Sigurrós. ”…

  • Hér er ég, dagur 6.

    Fréttir dagsins. Loksins, Loksins komst ég inn á netið – þessir pungar virka nefnilega ekki alltaf eins og þeir ættu að gera 🙂  En með hjálp Símans gekk þetta nú fyrir rest þegar ég hafði heilsu til að tala við þá. Ég komst hérna inn á sjúkrahótelið um miðjan dag í gær og hafði það…

  • Komin á sjúkrahótel 🙂

    Sigurrós skrifar: Fyrir ykkur sem ekki eruð á Facebook, þá er mamma komin inn á sjúkrahótelið og við erum öll alsæl með það! 🙂 Nú ætlar hún að reyna að safna kröftum og einbeita sér að batanum og vonast til að geta síðan farið að hafa almennilega samskipti við umheiminn á nýjan leik. Hún var…

  • Smá uppfærsla á þriðja degi.

    Þakka ykkur fyrir allar góðu kveðjurnar og Sigurrós mín þakka þér fyrir að setja inn póstana. Skurðlæknirinn hann Kristján Skúli er nú ekki par hrifinn af því að ég fékk ekki inni á sjúkrahótelinu. Hann segir að meðferðin sé miðuð við að það séu tveir dagar á sjúkrahúsinu eftir aðgerð og svo beint á sjúkrahótelið…

  • Komin heim…

    Sigurrós skrifar: Þetta er nú meira ástandið á þessu heilbrigðiskerfi okkar. Mamma var sum sé send heim í dag, nákvæmlega tveimur sólarhringum eftir að hún kom úr aðgerð þar sem heill líkamspartur er fjarlægður! Það stendur nú í pappírunum sem hún hafði fengið í hendurnar að konur ættu að vera á sjúkrahúsinu í 3-5 sólarhringa…

  • Dagur tvö

    Sigurrós skrifar: Ég fékk sms frá mömmu í morgun um að nóttin hefði verið fín, hún hefði fengið verkjalyf fyrir nóttina og verkirnir höfðu ekki versnað. Það var sama sagan upp úr hádegi, hún hafði það ennþá alveg ágætt. Síðdegis var þrýstingurinn samt farinn að aukast eitthvað og þetta var orðið eitthvað óþægilegra en þó…

  • Fyrsti dagurinn gekk vel

    Sigurrós skrifar: Við systurnar fórum að heimsækja mömmu í kvöld og hún var furðuhress, sátt og sæl. Hún fékk reyndar einhverja mænudeyfingu í svæfingunni og hún er meira en hálfan sólarhring að fara úr, svo að það má svo sem alveg búast við því að verkirnir eigi eftir að aukast, en það er a.m.k. gott…