Author: Ragna

  • Bátsferðin á litlu skelinni.

    Þegar utanborðsmótorar fóru að koma á markað upp úr 1960  urðu þeir mjög vinsælir.  Þá komu jafnframt á markaðinn litlar bátskeljar úr plasti. Þessar litlu bátskeljar var hægt að fá leigðar til að skreppa  í svona smá sunnudagsferðir út á sundin blá. Okkur fjórum kjánaprikunum, Kristni, Viktori, Oddi og skvísunni sem fylgdi þeim í öllu…

  • Martröðin á ströndinni:

    Við bjuggum í Surrey á Englandi í tæp tvö ár 1975 og 1976 og þegar þessi frásögn gerðist var Guðbjörg fjögurra ára, eins og hún er á myndinni hérna fyrir neðan. Við fengum mikið af gestum þennan tíma sem við vorum þarna úti og nú voru tengdamamma og Linda mágkona, sem þá var bara unglingur,…

  • Nýja Saumavélin.

    Við vorum nýflutt í Grófina 1 þegar ég ákvað að kaupa mína fyrstu saumavél því nú var ekki eldgamla saumavélin hennar mömmu tiltæk. Ég fékk því að skreppa í bankann í vinnutímanum einn daginn og tók peninga út af bankabókinni minni og fór svo rakleitt þegar vinnu lauk inn í Borgartún í heildverslun Ásbjörns Ólafssonar. …

  • …úr skálum reiði minnar.

    Mikið óskaplega verð ég reið að heyra aftur og aftur um nýjan  niðurskurðurð í heilbrigðiskerfinu. Nú veit ég að það þarf að skera niður til þess að ná endum saman, en af hverju alltaf í velferðarkerfinu.   Hversu oft koma fréttir um að að t.d sendiráði hafi verið lokað í sparnaðarskyni eða sendiráð hafi verið sameinað…

  • 5.hluti – Sérstök brúðkaupsnótt – brúðkaupsfeð

    “Eigum við ekki bara að nota tækifærið og gifta okkur og nota ferðina sem brúðkaukpsferð?” sagði Oddur,  Jú það fannst mér mjög góð hugmynd og þar með var það ákveðið. Mæting í ferðina átti ekki að vera  fyrr en klukkan hálf þrjú eftir hádegi, svo við hefðum alveg tíma til þess að gifta okkur um…

  • 4.hluti gömlu ástarsögunnar

    Við  fengum  lánaðan sendibíl og tókum saman þær litlu eigur sem við áttum hvort um sig. Við byrjuðum á því að fara á Kambsveginn og sækja húsgögnin mín, stóra radíofóninn sem ég hafði keypt mér þegar ég byrjaði að vinna og var mjög montin af, sófaborð sem ég hafði fengið í fermingargjöf og gamla dívaninn…

  • 3. hluti – úr lífi ástfangins unglings um 1960

    Nú var ég búin að kynnast fjölskyldu Odds, og mamma hafði boðið hann velkominn heim til okkar, en það var ennþá nokkuð vandamál með hann elsku pabba minn  því hann vildi enn ekki sætta sig við að litla stelpan hans væri komin með alvöru kærasta bara 16 ára gömul – þetta gæti bara ekki verið…

  • 2. hluti – Ástfanginn unglingur árið 1960.

    Það hafði allt í einu orðið algjör umbylting á lífi mínu og nú hringsnerust alls konar vangaveltur í höfðinu á mér daginn út og daginn inn  – Getur verið að hann sé í alvöru hrifinn af mér?  – Ætli hann fari ekki að hringja? Svo tók hjartað aukaslag í hver skipti sem síminn hringdi. Svo…

  • 1. hluti – alvöru ástin rifjuð upp 50 árum síðar.

    Einhvern tíman sem oftar þegar ég leiddi hugann að gömlum tíma, sem gerist nú stundum, þá ákvað ég að búa til skjal í tölvunni minni og skrifa niður það sem ég var að hugsa .  Núna  eru 50 ár síðan þessi gamla ástarsaga hófst og í ljósi þess að ég var að fá nýja heimasíðu…

  • Fyrsta bloggið á nýju heimasíðunni minni.

    Ég er svona að taka smá forskot á sæluna því nýja heimasíðan er ekki alveg tilbúin.  Ég fór með tölvuna á gjörgæsluna til Jóa tengdasonar míns í gærkveldi vegna þess að ég var komin með eitthvað fjárans “Netlog”, inná hjá mér, sem ég var dauðhrædd við. Þetta hafði þó ekkert með heimasíðuna mína að gera.…