Fyrstu sólarhringar á HNLFÍ í Hveragerði.

Ég kom hingað í gærmorgun á  föstudegi – Skrýtið að láta mann mæta á föstudegi bara til að bíða með allt til mánudags. Mér fannst þangað til í hádeginu í dag, að ég væri komin í stofufangelsi, þó ég hafi nú reyndar aldrei prufað það.

Ég var búin að vera að lesa inni á herbergi og tengja svo öðru hvoru tölvuna við símann minn og mér bara hundleiddist. Ég hel ég hafi aldrei áður á ævinni upplifað það að halda að ég væri að verða þunglynd, og það eftir sólarhring á Heilsustofnun – Halló, mig langaði bara aftur heim til mín.

Svona leið gærdagurinn og morguninn, en þegar ég kom úr hádegismat í dag spurði ég sjálfa mig „Hvar er jákvæðni þín  kona“?  Það hefur nefnilega ekki farið mikið fyrir jákvæðninni síðan ég kom og byrjaði að bíða eftir að helgin líði og ég komist i gang með eitthvað. Ég fékk gamalt herbergi með svo mikilli fúkkalykt að mér varð óglatt þegar ég kom þar inn, en ég hafði galopinn glugga allan daginn svo ég náði að lofta út, eða ég er orðin samdauna – veit ekki hvort heldur er. Það kom svo í ljós þegar ég kvartaði, að þetta herbergi hefur ekki verið notað lengi svo það er kannski skýringin.  Ég hef þrátt fyrir þetta með herbergið haldið mig þar milli matartíma, þar til eftir hádegið í dag þegar ég loks tók mér tak og sagði hingað og ekki lengra því svona þýddi ekki að halda áfram.

Jákvæðnin fór að vakna aftur eftir hádegismatinn, en þá brá svo við, að nú var laust sæti í pínulitla  kaffiskotinu  sem aðeins rúmar níu manns og ég notaði tækifærið og settist þar inn og sníkti mér jafnframt smá lögg af kaffi. Kaffi er reyndar forboðinn drykkur hér nema það sem fólk laumast til að drekka í þessu litla skoti. Ég var nokkrum sinnum búin að líta þarna við frá því ég kom í gærmorgun, en alltaf var setið þar í hverju sæti og aðrir sem stóðu í dyrunum. Nú var ég hinsvegar heppin að komast innfyrir. Þarna var skvaldur og glens og viti menn, mér fannst ég strax losna úr þessari einangrun og fannst ég ekkert vera í stofufangelsi lengur. Ég naut þess að hlusta á það sem þarna var í gangi á meðan ég sötraði kaffilöggina,

Nú klukkan hálf fimm hef ég ekki komið inn í herbergið frá því í hádeginu. Ég fór með tölvuna hérna inn í alrýmið þar sem hægt er að vera í beinu tölvusambandi og mikill munur á því að sitja hér, en ekki ein í dimmu herbergi og finnast ég vera í stofufangelsi.

Jákvæðnin er sem sagt fundin og það sannast sem fyrr að hún verður alltaf að vera til staðar ef vel á að ganga. Félagsskapur á nýjum stað kemur ekkert á silfurfati og það þýðir ekki að sitja fúll í sínu horni og biða eftir því að aðrir láti manni líða vel og þá verði gaman.  – Það gerist akkúrat ekkert á þann hátt. Ég sé bara hvað ég get verið þakklát fyrir að hafa ekki þurft að hafa þessa tilfinningu  nema í sólarhring, því sumir búa með svona förunaut alla ævi.
Alltaf eitthvað sem maður getur þakkað fyrir – bara að leita í sínu eigin hugskoti fyrst.

Á mánudaginn á allt að fara í gang og ég fæ að vita hvað mér stendur til boða hér og hvaða fyrirmæli hafa fylgt umsókninni minni. – Ég hef enga hugmynd um það , vissi fyrst ekki einu sinni hver hefði staðið fyrir því að ég er send hingað. Núna veit ég hinsvegar að krabbameinslæknirinn stendur fyrir því að hingað er ég mætt og ég á örugglega eftir að vera þakklát fyrir það.

This entry was posted in Helstu fréttir., Ýmislegt. Bookmark the permalink.

8 Responses to Fyrstu sólarhringar á HNLFÍ í Hveragerði.

  1. Dandý says:

    Flott hjá þér Didda mín:)

  2. Got gott mín kæra. Hafðu upp á Hreini og Stínu frá Hornafirði, prýðishjón og skemmtileg. Gangi þér svo vel Ragna mín.

  3. Ástríður Ebba says:

    Elsku Ragna
    Vona að þú kynnist fullt af jákvæðu fólki og endurheimtir fyrri orku og vellíðan í Hveragerði. Mér finnst Hveragerði einn besti staður sem til er en ég var nú nokkuð ung þegar ég fór á elliheimilið Ási. Það var mín sveit og lékum við frænkurnar okkur allan daginn ýmist hver við aðra eða við vistfólkið. Sundlaugin Laugaskarð er frábær, hituð upp með hveravatni. Hafðu það sem best Ragna mín og láttu nú dekra við þig.

    Kær kveðja
    Ebba

  4. Erna frænka says:

    Ja gott hja ter Didda min, tydir ekkert ad vera eins og unglingur sem fer ur einum stad a annan ad leita ad skemtilegu party -an tess ad gera ser grein fyrir tvi ad hann/hun ber gamanid med ser. Annars se eg ad tu ert vopnud med tølvu og ødru godu. To eg nåi sjaldan ad lita i bok tegar eg fer i „slikar utilegur“ tå hef eg alltaf einhverjar skruddur med , sem haft bedid min lengi. Gangi ter nu alt i har elske frænka . Fylgist med ter herna

  5. Ragna says:

    Málið er að þetta helltist bara yfir mig þegar ég kom hérna, var ekki í neinni depurð áður. Nú er þetta bara búið og allt í þessu fína. ´

  6. Anna Bj. says:

    Þú verður nú orðin öllum hnútum kunnug þarna, þegar ég kem! Vonandi færðu gott veður miðað við árstíma. Hafðu það sem allra best, heyrumt 🙂

  7. Þórunn says:

    Velkomin í nágrennið Ragna mín, við eigum eftir að skreppa í heilsufæðið einhvern daginn en vegna pestarinnar sem ég er með ætla ég ekki að hætta á að smita þig. Gangi þér vel við sjáumst fljótlega.

  8. Katla says:

    Láttu þér líða vel Ragna mín, ég veit að förunauturinn jákvæðnin fer aldrei langt frá þér.

Skildu eftir svar