Author: Ragna

  • Óvænt – Inspired by Iceland.

    Þegar Sigurrós kom heim úr kennaraferðinni til Englands sagðist hún hafa setið hjá enskri konu í flugvélinni, svona á mínum aldri. Sú sagðist vera með vinkonu sinni  og þær væru líka kennnarar og væru að koma  í vetrarferð til Íslands.  Sigurrós fannst gaman að spjalla við hana.  Konan sagði henni að þær væru að fara…

  • Smá uppfærsla.

    það er stundum alveg ótrúlegt hvað hver dagurinn af öðrum fer á ógnarhraða í alls konar snúninga og snatt,  sem lítur ekki út fyrir að vera mikið mál að klára þegar  minnismiði er skrifaður fyrir daginn. Eftir að ég náði mér niður úr hraðasta Sterarússibananum og hætti að róla mér í ljósakrónunum, þá lá auðvitað…

  • Athyglisvert á Tenerife – íslenska efnahagshrunið.

    Einhvern fyrstu dagana þegar við fórum í göngutúr út á DUKA strönd þá rölti ég einn hring inni í búð á leiðinni. Afgreiðslukonan, bresk, sem  í ljós kom að var búin að búa í einhverja áratugi á Tenerife fór að spyrja hvaðan við værum og kom þá í ljós að hún var býsna fróð um…

  • Margt fer öðru vísi en ætlað er.

    Í beinu framhaldi af ferðinni á Teide fór ég að finna fyrir kvefi, sem magnaðist fljótt yfir í astma. Ég fann því blaðið frá fararstjórunum yfir læknastofur og spítala, þar sem enska var töluð. Ég ákvað að byrja á byrjuninni og fór á læknastofuna og kom til baka með fúkkalyf og fleiri stera en ég…

  • Alveg stór undarlegt.

    Í einum af göngutúrunum okkar fyrstu dagana rákumst við á þennan dularfulla gerning úti í Los Cristianos. Við fylgdumst með þessu í a.m.k. svona 20 mínútur til þess að sjá hvernig þeir færu úr þessari stöðu og  það var ótrúlegt að fylgjast með þessu. Sá sem haldið er á er bara í lausu lofti nema…

  • Ferðin á Teide og vínbúgarðinn í máli og myndum.

    Þar sem við höfðum geymt okkur í fyrri ferðum okkar til Tenerife að fara í ferð á Teide, sem er hæsta fjall spánar 3700 m. hátt,  vorum við ákveðin í að fara í slíka hópferð að þessu sinni.   Það er gaman að segja frá því að Vita og Heimsferðir sameinast um að fara með…

  • Fyrsta vikan á Vulcano og “Bedding” í fjallaþorpi.

    Við dvöldum á mjög fallegu og góðu hóteli, þar sem alltaf var hlýtt  þó hitinn úti væri kominn allt niður í 13°, eins gerðist nokkuð oft á kvöldin og nóttunni. (Termostat var bara stillt á 25 í herberginu og hélt hitanum í því hitastigi). Við áttuðum okkur ekki á því að það gæti orðið svona…

  • Krakkar mínir komið þið sæl. Fyrsti pistill.

    Þá er nú konan komin heim úr sólarlandaferðinni sinni.  Þetta ferli hefur allt verið hið undarlegasta, allt frá því að ég alveg sprelllfrísk keypti  farmiða til Tenerife til þess að komast úr snjódyngjunum hérna heima og létta aðeins lundina og fá sól í gigtarkroppinn.  Eftir að ég keypti farmiðana þurfti  nú ekki meira til en…

  • Að komast á beinu brautina.

    Dagurinn í gær og í dag hafa fært mér sanninn um það loksins, að ég er að fara í sól og hita.  Í gær fann ég fyrst að mér var eitthvað að batna og í dag hef ég líka verið mun hressari. Ég hitti lækninn minn í morgun og hann sagði að þetta hefði nú…

  • Smá uppfærsla – meira fyrir bókhaldið hjá mér.

    Þá er alveg að verða kominn 30. janúar og að réttu lagi værum við að fara í sólarlandaferð  næsta þriðjudag 31. janúar. Sem  betur fer fékk ég fyrir rest breytt ferðinni um viku sem er eins gott því þetta með heilsuna hefur nú gengið svona frekar brösulega.  Fyrir utan það að nú er Haukur líka…