Author: Ragna

  • Ríkidæmi mitt.

    Ég er búin að sitja góða stund og skoða myndaalbúmin mín hérna á heimasíðunni. Myndirnar frá árunum á Selfossi eiga alltaf alveg sérstakan sess í huga mér því ég fékk að njóta þess að verja svo miklum tíma með elstu barnabörnunum mínum sem bjuggu líka á Selfossi á þeim tíma.  Svo finnst mér bara svo…

  • Föstudagurinn langi.

    Nú er föstudagurinn langi aðeins farinn að styttast. Þetta hefur verið einn rólegasti dagur sem ég hef upplifað. Síminn hefur ekki hringt, ég hef ekki farið út fyrir dyr, enginn komið og nánast engin bílaumferð verið hérna í kring í dag.  Bara algjör ró yfir öllu.  Veðrið hefur verið afskaplega furðulegt, með mjög örum skiptingum…

  • Miðvikudagur smá gullkorn.

    Á miðvikudögum þá sæki ég Rögnu Björk í Smáraskóla um tvöleytið og fer með hana í Myndlistarskóla Kópavogs á Smiðjuveginum, en amma Björk sækir hana síðan. Það er alltaf sama “rútínan” hjá okkur. Þegar við erum komnar í bílinn og mín er búin að festa sig í öryggisbeltið, þá tekur hún upp nestið sitt og…

  • Skemmtilegur tími.

    Núna þegar kominn er sá tími sem öll barnabörnin mín, nema Oddur Vilberg eiga afmæli, þá er vorið að koma þrátt fyrir snjó á jörðu og kuldabola, sem á það ennþá til að bíta mann smávegis.  Sólin hækkar á lofti dag frá degi og gefur þannig til kynna hvað við eigum í vændum. Nafna mín…

  • Gamlingjarnir.

    Okkur gamlingjum datt í hug að fara í bíó í kvöld. Myndin var sýnd í Sambíói í Kringlunni, en mörg ár og margir dagar eru frá því við höfum hvort um sig farið í bíó þar og Haukur sagðist aldrei hafa farið í Kringlubíó. Bílnum var lagt við neðri hæðina eins og venjan er þegar…

  • Þrír bræður eftir helgina.

    Ég bíð spennt eftir vorinu, sem mér finnst alveg óháð veðri byrja að gera vart við sig eftir bolludag, sprengidag og öskudag, en þeir þrír bræðurnir mæta einmitt eftir helgina. Ekki veit ég hvort þessir dagar eru eins spennandi í dag og þeir voru þegar ég var stelpuskott. Það var mikill spenningur á bolludaginn að…

  • Lítil þúfa – stór þúfa.

    Ég opnaði áðan Kyrrðarsporin mín, sem vildu að ég hugleiddi þennan texta “Hugurinn getur aðeins einbeitt sér að fáeinum hugmyndum í einu og jafnvel þær verða yfirleitt fljótlega óskýrar”. Þetta skýrir einmitt ástand mitt þessa dagana. Ég hef verið að hugsa um hvað það er leiðinlegt að lát bloggið mitt alveg drabbast niður. Öðru hvoru…

  • Áhættan í lífinu.

    Hafið þið tekið eftir því hvað daginn er að lengja. Þó það snjói og þó það blási, þá finn ég samt að vorið er í nánd.  Ég gjóa augunum hérna út þar sem Haukur geymir húsbílinn sinn og er strax farin að láta mig dreyma um að komast í skemmtileg ferðalög á fallega landinu okkar.…

  • Eftir góða nótt býður maður vitaskuld góðan dag.

    Það er hvasst úti og svona hvorki né veður. Stundum fagnar maður svona dögum sem ekki toga í mann að verða að fara eitthvað af því veðrið sé svo fallegt. Svo fer maður út í bíl og fer bara eitthvað af því veðrið er svo gott og oftar en ekki reynist veðrið síðan bara vera…